Ábyrgð samningsaðila er mikil að ná samningum
Hluti af því að takast á við ábyrgð er að hafa kjark þegar reynir á erfiðu ákvarðanirnar. �?g hafði bæði í ræðu og riti rætt um að mikilvægt væri að stöðva kjaradeiluna um borð í Herjólfi og jafnvel að beita til þess lögum ef allt um þryti, eins og að lokum var gert. �?g fann það vel á sjálfum mér að þegar ég í enda dagsins stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun, var hún mér þungbærari en ég hafði gert mér í hugalund.
�?að er alvörumál að stíga inn í kjaradeilu þar sem réttur hvers og eins er að semja um launin sín. Í mínum huga var lagasetningin nauðsynleg á þessum tímapunkti og ég vék mér ekki undan þeirri ábyrgð. Í heimsókn minni til Eyja í síðustu viku bentu margir mér á að hugsanlega hafi verið gerð mistök í lagasetningunni að vísa deilunni ekki um leið í kjaradóm. Eftir að hafa hlustað á þau rök m.a. hjá skipsmönnum á Herjólfi þá tek ég undir þau sjónarmið sem þar komu fram og mun kynna mér betur og fara yfir það með ráðherra.
�?g óskaði eftir að hitta trúnaðarmann og þá úr áhöfninni á Herjólfi sem vildu ræða málin við mig og heyra mína hlið málsins og ég þeirra hlið. �?að var gott spjall í borðsalnum í Herjólfi þar sem við skýrðum málin hvorir fyrir öðrum í góðu og yfirveguðu spjalli. Eðlilega eru þau beygð eftir erfiða baráttu og ósanngjarna lagasetningu að þeirra dómi, en síðustu vikur hafa verið þeim þungbærar. �?au undruðust að ekki hafi verið settur kjaradómur á deiluna og hafa af því miklar áhyggjur að öll vopn hafi verið slegin úr þeirra höndum til að ná eðlilegum samningum. Áhyggjur þeirra eru skiljanlegar og ég tek undir þær. Í byrjun september þegar lögin falla úr gildi fer Herjólfur utan í slipp og áhöfnin hefur áhyggjur af því að lítill eða enginn þrýstingur sé á Eimskip að semja fyrir þann tíma. Ábyrgð Eimskipa og viðsemjenda áhafnarinnar er mikil og það er krafa allra að nú þegar verði hafist handa um að finna leiðir til sátta og landa samningum sem fyrst. �?g fékk greinargóða kynningu á kröfum þeirra og mun í framhaldinu kynna mér stöðuna enn betur og hvetja til samninga.
�?g velti fyrir mér hvernig við getum komið í veg fyrir frekari kjaradeilur og skærur um borð í Herjólfi. Áhöfnin er undir álagi frá umhverfinu og erfitt þegar heilt samfélag er skert af þjónustu sem bitnar illilega á íbúunum og atvinnulífi enda skarast hags-munirnir. �?að þarf að semja við áhöfnina á Herjólfi í heildar-samningi um borð. �?ar sem fundin er út eðlilegur launamunur sam- kvæmt ábyrgð og stöðu og þannig tryggt að hvert félagið á fætur öðru geti ekki stöðvað skipið í lengri eða skemmri tíma sem getur gerst. Gerum allt til að koma í veg fyrir að kjaradeilur fari það langt að til verkfalls komi. �?ar liggur ábyrgðin beggja vegna borðs og það er krafa samfélagsins í Eyjum að samnings-aðilar rísi undir þeirri ábyrgð sem þeir hafa tekist á hendur og semji um launakjör á Herjólfi sem eru í samræmi við kjör í sambærilegum störfum.

Nýjustu fréttir

Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Morgan Goði – Íþróttamaður mánaðarins
Þrír ættliðir stóðu vaktina í Tvistinum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.