Eyjamaðurinn Kristján Egilsson fagnaði í dag sigri í Íslandsmóti 67 ára og eldri í snóker. Mótið fór fram í Reykjavík en Kristján varð efstur í riðlakeppninni, vann í undanúrslitum og lagði svo �?skar Kristinsson í úrslitaleik 2:1, eftir að hafa verið 0:1 undir. Íslandsmeistaratitillinn helst því í Eyjum en í fyrra varð Páll Pálmason Íslandsmeistari í sama aldursflokki og þá varð Kristján í öðru sæti en Páll átti ekki heimangengt í mótið í ár. �?ess má til gamans geta að þeir Kristján og Páll eru æfingafélagar, spila snóker mjög reglulega yfir vetrartímann. Kristján fær því grobbréttinn næsta vetur á æfingum þeirra félaga.