Vetrarlokahóf í kvöld
Í kvöld fer fram vetrarlokahóf ÍBV-íþróttafélags. Boðið verður upp á stórglæsilegan þriggja rétta matseðil að hætti Einsa kalda og glæsileg skemmtiatriði þar sem m.a. meistaraflokkarnir stíga á stokk. Hápunkturinn er svo þegar viðurkenningar fyrir árið verða afhentar. Eflaust verður mikið fjör enda árangurinn í handboltanum framar öllum vonum þar sem kvennaliðið komst í undanúrslit Íslandsmótsins en strákarnir fóru alla leið eins og kunnugt er. Til þessa hefur félagið boðið á hófið en í ár kostar 2.500 krónur inn, sem er svo sem ekki mikið, miðað við hvað er í boði.

Nýjustu fréttir

„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.