Molarnir tveir
Í fámennum stjórnum eins og bæjarstjórn Vestmannaeyja skiptir hver einstaklingur sem þangað velst inn miklu máli. Í kosningum til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum sem nálgast óðfluga eru a.m.k. tveir einstaklingar í framboði sem geta endað í bæjarstjórn sem ég hef haft mikil kynni af og ég leyfi mér að fullyrða að séu miklir molar.
Trausti Hjaltason er bróðir minn og fáir þekkja þennan eðalmola jafnvel og ég. Mig grunar að allir sem þekkja Trausta af einhverju viti geti tekið undir það að þar er að finna einn heiðarlegasta og ábyrgðarfyllsta mann sem fyrirfinnst þó víða væri leitað. �?g hef aldrei vitað til þess að Trausti hafi tekið að sér verkefni nema að hann fylgi því eftir eins vel og hann mögulega geti. Hann er í raun svo ótrúlega ábyrgðarfullur og nákvæmur að ég og konan mín grínumst stundum með að hann sé örugglega vélmenni. Sjálfur er ég örlítið sveiflukenndari karakter en bróðir minn. �?g hef oft fengið símtöl frá kappanum þar sem hann hefur ákveðið að taka að sér verkefni og vill vita meira um viðfangsefnið og skilja báðar hliðar svo hann geti sinnt verkefninu vel og á sanngjarnan hátt. Ef það er einhver maður sem ég myndi treysta í öllum heiminum fyrir þáttum eins og ábyrgum fjármálum og að skoða mál í grunninn og taka upplýstar ákvarðanir þá væri það bróðir minn. Trausti er í fjórða sætinu hjá Sjálfstæðisflokknum.
Elliði Vignisson. �?g kynntist Elliða þegar hann kenndi mér sálfræði í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. �?g og Elliði rökræddum mikið á þessum tíma. �?að sem kom mér á óvart hjá Elliða var að hann var ólíkt flestum tilbúinn að hlusta á og íhuga vandlega það sem ég lagði á borð, jafnvel þó ég væri ekki nema 17 ára á þeim tíma. �?g varð vitni af því í nokkur skipti að hann skipti um skoðun eftir við rökræddum og það var þá sem ég byrjaði að skilja að þetta væri áhugaverður moli. �?g og félagar mínir undirbjuggum framboð gegn Sjálfstæðisflokknum árið 2006 undir nafni Svarta Listans. Eftir að við höfðum undirbúið framboðið og fengið góðan stuðning í bænum (ég vil meina að við hefðum fengið 1-2 menn) uppgötvuðum við að enginn af okkur hafði tök á að sitja í bæjarstjórn næstu fjögur árin, sjálfur var ég á leið erlendis í háskólanám. Við nálguðumst því Elliða og ræddum um að koma þeim málefnum sem við höfðum á oddinum í framkvæmd hjá þeim sem sneru fyrst og fremst að menningu og íþróttum. Elliði gaf okkur orð sitt um að þetta færi ofar í röðina og að við mættum hafa greiðan aðgang eftir kosningar að þessum málaflokkum óskuðum við þess. Allt sem Elliði sagði stóðst. �?g hef síðan þá mörgum sinnum mætt Elliða hvort sem það hefur verið sem Vestmannaeyingur, starfsmaður ráðuneytis eða útsvarsgreiðandi og alltaf hefur það sem hann hefur sagt staðist og hann fylgt því eftir, engin innantóm loforð eða yfirlýsingar sem geta ekki staðist. �?etta kann ég að meta og hef ég lært það vel á síðustu tíu árum að það er hægt að treysta Elliða. Elliði er í fyrsta sætinu hjá Sjálfstæðisflokknum.
�?að er því fyrst og fremst vegna þess að þessir tveir kappar eru í framboði hjá Sjálfstæðisflokknum sem ég ætla mér að kjósa flokkinn. Ekki skemmir síðan fyrir að líklega hefur enginn bæjarstjórn á landinu staðið sig betur síðastliðin ár þegar kemur að ábyrgri fjármálastjórn eins og bæjarstjórn Vestmannaeyja sem hefur verið leidd af Sjálfstæðisflokknum. Hér mætti nefna ýmislegt en ég er t.d. þakklátur fyrir að rúmlega 3,3, milljarðar af lánum hafa verið greiddir upp á sama tíma og útsvar hefur verið lækkað og skuldir á íbúa eru með því lægsta sem gerist á landinu. �?að er alls ekki sjálfsagt að það sé ábyrg og góð fjármálastjórn hjá sveitafélagi á Íslandi eins og sjá má hjá yfirgnæfandi meirihluta sveitafélaga í gegnum tíðina.
Vestmannaeyjar eru besti staður í heimi að búa á og það þarf gott fólk til að varðveita paradísina okkar. �?g treysti bróður mínum og Elliða sérstaklega vel í verkið.
Kappakveðja
Tryggvi Hjaltason

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.