Höfuðkostir nýs bæjarstjóra
�?á er kosningabaráttunni að ljúka. �?g held að segja megi að hún hafi að mestu farið fram með prúðmannlegum hætti. Eyjalistninn ákvað til dæmis strax í upphafi baráttunnar að einbeita sér að málefnum og leggja þau í dóm kjósenda frekar en að hamast á andstæðingnum engum til gagns. �?essi aðferð hefur vakið verðskuldaða athygli og vonandi skilar hún sér til fylgis við Eyjalistann.
Í kosningabaráttunni hefur ekki verið mikil umræða um bæjarstjóraefni og nú í fyrsta skipti hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki lagt mikla áherslu á að halda sínu bæjarstjóraefni sérstaklega á lofti, hvað svo sem veldur. �?etta er ég ánægður með vegna þess að kosningarnar á laugardaginn snúast um kjör sjö manna bæjarstjórnar en ekki bæjarstjóra. Að loknum kosningunum tekur síðan við val á bæjarstjóra.
Komi það í hlut Eyjalistans að ráða bæjarstjóra tel ég að sá sem ráðinn verður þurfi að hafa marga góða kosti því Vestmannaeyja bíða fjölmörg mikilvæg verkefni á næstu árum. Höfuðkostirnir sem nýr bæjarstjóri þarf að hafa eru að mínu mati helst þessir:
Nýr bæjarstjóri þarf að vera bæjarstjóri allra bæjarbúa. Hann má ekki láta einn flokk, vini og vandamenn ráða úrslitum um störf sín.
Nýr bæjarstjóri þarf að geta unnið með allri bæjarstjórninni og njóta traust bæði meiri- og minnihluta. Hann þarf að virða bæjarfulltrúa alla og skoðanir þeirra og reyna að fremsta megni að ná með þeim sameiginlegri niðurstöðu í hagsmunamálum Vestmannaeyja.
Nýr bæjarstjóri þarf að koma fram við alla bæjarbúa af kurteisi og yfirvegun, sýna að hann er starfsmaður þeirra og ekki yfir þá hafinn á nokkurn hátt.
Nýr bæjarstjóri þarf að sýna rökfestu í viðskiptum sínum við stjórnvöld landsins. Hann þarf að vinna með þeim að lausn mála en ekki á andstöðu við þau. �?að er vísasta leiðin til að ná árangri í okkar brýnustu hagsmunamálum.
Að lokum langar mig að setja fram þá ósk mína að næsti bæjarstjóri í Vestmannaeyjum verði kona. �?etta skiptir auðvitað ekki öllu máli en væri í það minnsta skemmtileg nýbreytni.
Ef þú sem þetta lest ert sammála mé um þessar hugleiðingar ættir þú ekki að vera í vafa um hvað þú kýst á laugardaginn. X E er nefnilega augljóst val.
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.