KFS valtaði yfir Stokkseyri
KFS átti ekki í vandræðum með að leggja Stokkseyri að velli á Helgafellsvelli í dag en liðin leika í B-riðli 4. deildar Íslandsmótsins. Eyjamenn voru búnir að skora tvö mörk þegar fyrri hálfleikur var rétt að byrja en lokatölur urðu svo 9:0 hvorki meira né minna. Staðan í hálfleik var 3:0. Tryggvi Guðmundsson, gamli markahrókurinn sýndi að enn er líf í markaskónum en hann skoraði þrjú mörk í dag. Gauti �?orvarðarson, sem er í láni frá ÍBV, skoraði einnig þrennu en Gauti hefur verið iðinn við kolann með KFS og velta menn því fyrir sér af hverju hann sé ekki kallaður til baka til að hressa aðeins upp á sóknarleik ÍBV liðsins. Ingólfur Einisson skoraði svo tvö mörk og Hilmar Ágúst Björnsson skoraði eitt, kom KFS yfir strax í upphafi leiks með hörkuskalla eftir hornspyrnu.
�?etta var annar sigur KFS í röð í B-riðli í jafn mörgum leikjum en liðið er í efsta sæti riðilsins með sex stig og markatalan er 13:1.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.