Sæbjörg, skólaskip Slysavarnaskóla sjómanna lá við bryggju í Eyjum í gær. Skipið er á leið í slipp á Akureyri, en ferðin er notuð til að halda námskeið fyrir sjómenn á nokkrum viðkomustöðum. Í Eyjum var haldið tveggja daga endurmenntunarnámskeið og námskeið fyrir smábátasjómenn. Héðan heldur skipið til Neskaupstaðar og þaðan liggur leiðin til Akureyrar. Sæbjörg hefur lítið hreyft sig úr Reykjavíkurhöfn undanfarin ár og er skortur á rekstrarfé ástæðan.