Gervihnattaútsendingar R�?V tryggðar
Fjármálaráðherra ætlar að sjá til þess að útsendingar R�?V um gervihnött falli ekki niður í sumar – þær séu hluti af almannaþjónustu Ríkisútvarpsins. Hann segir að tryggja verði fjármagn fyrir varanlega lausn.
Fréttablaðið greindi frá því í morgun að útsendingar um gervihnött myndu falla niður um mánaðamótin þar sem ekki væri fjármagn til að halda þeim áfram. Sjómenn, íbúar á svæðum þar sem útsendingar nást illa, sumarhúsaeigendur og Íslendingar í útlöndum njóta góðs af þessum útsendingum.
Árlegur kostnaður vegna þessa er um sextíu milljónir á ári og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir mikilvægt að tryggja að þessar útsendingar falli ekki niður í sumar.
�??�?ess vegna erum við sammála um það að tryggja áfram fjármagn til þessarar þjónustu enda lítum við á hana sem ákveðinn þátt í grunnþjónustu Ríkisútvarpsins að koma efninu til sjófarenda og á þessi viðkvæmu svæði,�?? segir Bjarni.
Árlega hefur þurft að finna fjármagn til að halda úti þessum útsendingum og Bjarni segir að finna verði varanlega lausn. �??Og við munum leita leiða til þess en til skamms tíma er það aðalmálið að við tryggjum að þjónustan falli ekki niður,�?? segir Bjarni.
En kemur til greina að þetta verði í einhverskonar áskrift? �??Mér finnst það koma til skoðunnar og það hefur verið rætt í ríkisstjórn að það sé áhugi á því að skoða með hvaða hætti væri hægt að útfæra það en það hefur ekki verið skoðað til hlítar og á meðan svo er þá er ekkert hægt að úttala sig um það.�??

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.