Tveir æfingaleikir um helgina
Karlalið ÍBV leikur tvo æfingaleiki gegn Akureyrir um helgina en þetta eru fyrstu leikir liðsins fyrir komandi vetur. Fyrri leikur liðanna verður í dag, klukkan 18:00 en síðari leikurinn á morgun, laugardag klukkan 12:00. �?etta eru fyrstu leikir Íslandsmeistaranna á undirbúningstímabilinu og um að gera að kíkja á leikina og sjá hvernig liðið kemur undan sumri. �?á eru auk þess gamlar landsliðskempur í liði Akureyringa og gaman að sjá strákana spreyta sig gegn þeim.
Leifur í ÍBV
Eyjapeyinn Leifur Jóhannesson mun leika með ÍBV í vetur en Leifur er búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið. Leifur lék síðast með ÍBV veturinn 2011 til 2012 en hefur síðustu tvö ár spilað með 1. deildarliði �?róttar. Leifur fór mikinn með �?rótturum síðasta vetur, var langmarkahæsti leikmaður liðsins með 111 mörk í 20 leikjum en Leifur getur leikið bæði sem hægri skytta og í hægra horninu. Leifur var jafnframt valinn handknattleiksmaður �?róttar árið 2013 og í lok tímabils var hann valinn í úrvalslið 1. deildar í kosningu meðal þjálfara deildarinnar sem vefurinn Fimmeinn.is stóð fyrir.

Nýjustu fréttir

Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.