Karlalið ÍBV leikur tvo æfingaleiki gegn Akureyrir um helgina en þetta eru fyrstu leikir liðsins fyrir komandi vetur. Fyrri leikur liðanna verður í dag, klukkan 18:00 en síðari leikurinn á morgun, laugardag klukkan 12:00. �?etta eru fyrstu leikir Íslandsmeistaranna á undirbúningstímabilinu og um að gera að kíkja á leikina og sjá hvernig liðið kemur undan sumri. �?á eru auk þess gamlar landsliðskempur í liði Akureyringa og gaman að sjá strákana spreyta sig gegn þeim.
Leifur í ÍBV
Eyjapeyinn Leifur Jóhannesson mun leika með ÍBV í vetur en Leifur er búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið. Leifur lék síðast með ÍBV veturinn 2011 til 2012 en hefur síðustu tvö ár spilað með 1. deildarliði �?róttar. Leifur fór mikinn með �?rótturum síðasta vetur, var langmarkahæsti leikmaður liðsins með 111 mörk í 20 leikjum en Leifur getur leikið bæði sem hægri skytta og í hægra horninu. Leifur var jafnframt valinn handknattleiksmaður �?róttar árið 2013 og í lok tímabils var hann valinn í úrvalslið 1. deildar í kosningu meðal þjálfara deildarinnar sem vefurinn
Fimmeinn.is stóð fyrir.