Er þetta sæmandi gagnvart vinaþjóð okkar
Færeyska skipið Næraberg kom til hafnar í Reykjavík í morgun, vantaði skipinu olíu og einnig var vélin biluð. Skipið gat hinsvegar ekki fengið þessa þjónustu vegna ákvæði í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. – Færeyingar eru vinaþjóð Íslands, svona framkoma gagnvart vinaþjóð er ekki sæmandi. Skipverji á Næraberginu skrifar grein á fréttavefinn jn.fo og vandar Íslendingum ekki kveðjurnar: Hann seg­ir Íslend­inga eiga að skamm­ast sín fyr­ir að vera treg­ir til að hleypa skip­inu, sem lenti í vand­ræðum eft­ir að vél­in bilaði, að ís­lenskri höfn og neita því næst að veita því þjón­ustu. Vís­ar hann meðal ann­ars í fjár­hags­lega aðstoð sem Fær­eyj­ar veittu Íslend­ing­um eft­ir banka­hrunið 2008. �??�?etta eru þakk­irn­ar,�?? seg­ir skip­verj­inn sem skrif­ar bréfið.
Um borð í Nærabergi:
Skammið tykkum Ísland
Egil Petersen, sum siglir við Nærabergi hevur sent jn.fo eitt skriv. Hann er skuffaður av íslendingum, nú Næraberg ikki sleppur at leggja at í íslendskum havnum.
– Hetta er brøðurnir Ísland at nokta einum føroyskum fiskiskipi, sum hevur maskinskaða at koma inn at fáa umvælt skaðan, og verða tískil noyddir at seta kósina beint í móti einari ódn, sum sigst at koma ein av komandi døgunum
Víðari skrivar hann:
– Hetta er takkarlønin fyri tær milliónirnar vit veittu teimum í neyðhjálp, eftir at teir høvdu spælt kong gularót í fleiri ár. Av mær persónliga verður hettar aldrin gloymt teimum. Skammið tykkum Ísland! At gera slíkt við eitt skip, sum tørvar hjálp á opnum havi. Vit eru ikki beinleiðis í neyð, men blívur tað ringt veður, so eru vit 34 mans skótt í einari neyðstøðu.

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.