Lærdómur liðinnar viku
Uppbygging, samgöngur og menningarlíf settu svip sinn á fréttavikuna í Eyjum. Hér sjást framkvæmdir við Íþróttamiðstöðina, sanddæluskipið Sebastiano Caboto og Júníus Meyvant á tónleikum í Alþýðuhúsinu. Ljósmyndir: Halldór B. Halldórsson og Óskar Pétur Friðriksson.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Það er margt á hreyfingu í Vestmannaeyjum. Fréttir vikunnar hafa sagt frá íbúðabyggingum, nýju samstarfi fyrirtækja, framkvæmdum og menningarlífi. Þær sýna fólk sem hefur trú á staðnum, leggur í verkefni og sér tækifæri til að gera betur. Það er ástæða til að gefa þeim fréttum gaum.

Samkvæmt septembertalningu HMS eru 26 íbúðir í byggingu í Eyjum og aðrar 20 fullbúnar en hafa ekki verið teknar í notkun. Myndband Halldórs B. Halldórssonar frá framkvæmdasvæðum bæjarins sýndi líka að víða er unnið. Nýtt húsnæði skiptir máli fyrir fólk sem vill setjast hér að, fjölskyldur sem þurfa meira rými og þá sem vilja breyta um húsnæði án þess að flytja úr bænum.

Samstarf Laxeyjar og Salteyjar er annað dæmi um framtak. Þar á að nýta sjó sem fellur til við ferskvatnsframleiðslu til að framleiða flögusalt. Tvö fyrirtæki finna sameiginlegt tækifæri í því sem þegar er til staðar. Slíkar hugmyndir geta skapað verðmæti og aukið fjölbreytni í atvinnulífinu.

Traustar samgöngur eru ein af forsendum þess að þessi uppbygging geti haldið áfram. Fréttir vikunnar minna okkur á að þar er enn verk að vinna. Sanddæluskipið Sebastiano Caboto fjarlægði um 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn á þremur dögum. Í byrjun vikunnar var dýpi í hafnarmynninu sagt um sjö til átta metrar. Á föstudag mældist dýpið rúmlega þrír metrar.

Nýja, öfluga skipið á greinilega töluvert verk fyrir höndum. Horfa þarf á svæðið í heild, bæði innan og utan hafnar, og skýra hversu mikil dýpkunarþörf hefur safnast upp undanfarin ár. Afköstin gefa ástæðu til að vænta betri árangurs, en fyrir Eyjafólk mælist hann í því hvort hægt sé að treysta betur á siglingarnar.

Áhrifin sjást á Eyjablikksmótinu þessa helgi. Aðkomufélögin þurftu að sigla frá Þorlákshöfn á föstudag. Þótt nú sé boðuð ein ferð til Landeyjahafnar síðdegis í dag, sunnudag hefur óvissan um siglingarnar sett svip sinn á ferðaskipulag mótsgesta. Lengri siglingar þýða meiri tíma í ferðalög og flóknara skipulag fyrir börn, foreldra og þjálfara. Öruggar samgöngur skipta líka máli fyrir möguleika okkar á að halda öflug mót og taka á móti gestum.

Uppbygging þjónustunnar snýst jafnframt um fólkið sem heldur henni gangandi. Friðrik Páll Arnfinnsson lætur af störfum sem slökkviliðsstjóri um áramót, eftir tíu ár í því starfi og þrjá áratugi í liðinu. Þegar hann lítur yfir árin nefnir hann nýja slökkvistöð og bættan tækjakost sem mikilvægar framfarir. Hann lýsir líka álaginu sem fylgir því að vera eini starfsmaðurinn í fullu starfi og á vakt eða bakvakt alla daga ársins. Góð hús og tæki skipta máli, en við þurfum einnig að hlúa að þeim sem bera ábyrgðina.

Á föstudagskvöld var svo þéttsetið í Alþýðuhúsinu þegar Júníus Meyvant lék fyrir heimafólk. Öflugt samfélag þarf líka stundir þar sem fólk kemur saman og nýtur þess sem aðrir hafa fram að færa. Tónleikarnir í Alþýðuhúsinu voru ein slík stund.

Það er margt hér sem gefur okkur ástæðu til bjartsýni. Fólk byggir, skapar, tekur ábyrgð og leggur sitt af mörkum. Lærdómur vikunnar er að við þurfum að tryggja því aðstöðu, þjónustu og samgöngur sem styðja við þann vilja. Það er þannig sem við byggjum upp Eyjar til framtíðar.

 

Tryggvi Már Sæmundsson, ritstjóri Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.