Steinlágu fyrir Val
ÍBV tapaði í kvöld fyrir Val í 18. umferð Pepsídeildar karla í knattspyrnu en liðin áttust við á heimavelli Valsara. Lokatölur urðu 3:0 fyrir Val, sem voru miklu betri í leiknum en staðan í hálfleik var 1:0 Valsmönnum í vil. Lítil breyting varð á stöðu liðanna í fallbaráttunni, nema hvað að �?órsarar eru líklega fallnir, enda níu stigum frá öruggu sæti þegar tólf stig eru eftir í pottinum. ÍBV færðist niður úr sjöunda sæti í það áttunda. Valsmenn, sem eru komnir með 24 stig, eru að öllum líkindum lausir við falldrauginn enda hefur ekkert lið fallið með 24 stig, síðan liðum var fjölgað úr 10 í 12. ÍBV er ennþá með 20 stig og vantar því herslumuninn til að losna úr fallhættunni.
Eins og staðan er núna er �?ór neðst með 9 stig, Fjölnir er í 11. sæti með 16 stig, Fram í 10. sæti með 18 stig, Keflavík er í 9. sæti með 19 stig, ÍBV og Breiðablik eru í 8. og 7. sæti með 20 stig og Fylkir er í 6. sæti með 22 stig. �?etta eru þau lið sem teljast enn vera í fallhættu.

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.