ÍBV tryggði sér áframhaldandi sæti í Pepsídeild kvenna með sigri á FH. Leikurinn fór fram í Hafnarfirði og urðu lokatölur 1:4 en staðan í hálfleik var 0:2. Mörkin gerðu þær Nadia Lawrence, Shaneka Gordon, Vesna Smiljkovic og Natasha Anasi.
ÍBV er sem fyrr í 7. sæti en nú aðeins stigi á eftir Val, sem er í 6. sæti og tveimur stigum á eftir Selfoss sem er í því 5. Eyjastelpur eiga því ágæta möguleika á að komast ofar í töfluna áður en yfir lýkur en ÍBV á þrjá leiki eftir, gegn ÍA á heimavelli, Val á útivelli og Breiðabliki á heimavelli.