Gott lið en eigum möguleika
Karlalið ÍBV í handbolta leikur í dag fyrri leik sinn gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion í EHF-bikarnum. Leikurinn hefst klukkan 16:00 en liðin mætast svo á nýjan leik á morgun klukkan 14:00. Aðgangseyrir er 2.000 kr. en hægt er að kaupa miða á báða leikina á aðeins 3.000 kr. 23 ár eru liðin frá því að ÍBV lék síðast í Evrópukeppninni en haustið 1991 lék ÍBV gegn norska liðinu Runar og tapaði.
�??�?etta lið spilaði við FH fyrir þremur árum í Evrópukeppninni og vann þá í vítakeppni,�?? sagði Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV í samtali við Eyjafréttir í vikunni. �??�?etta lið hefur mikla reynslu úr Evrópukeppninni, náði í 8-liða úrslit 2009 þannig að þetta er hörkulið sem við erum að fara spila gegn. �?að er auðvitað alltaf erfitt að meta styrkleika á milli deilda, það er að segja þeirrar íslensku og ísraelsku. �?etta er gott lið en við teljum okkur eiga möguleika gegn þeim�??
Hverjir eru helstu styrkleikar og veikleikar Maccabi?
�??�?eir eru líkamlega sterkir, reyndir og spila góða vörn. Veikleikarnir eru hins vegar þeir að þeir eru svolítið villtir og klaufalegir í að missa hausinn eins og við segjum. �?etta lið virkar svolítið eins og Austur-Evrópsk lið, sterkir en svolítið villtir.�??
Vonumst eftir fullri höll
Vegna ástandsins við botn Miðjarðarhafs fær Maccabi ekki að spila heimaleikinn í Ísrael og því eru báðir leikirnir í Eyjum. Gunnar neitar því ekki að það sé gott að losna við ferð til Ísraels. �??Já, auðvitað en kannski fyrst og fremst ánægðir að geta boðið stuðningsmönnum okkar upp á Evrópuleiki. �?etta er í annað sinn sem slíkt er í boði hér í VEstmannaeyjum í handboltanum og mikilvægt að fá góðan stuðning í þessum leikjum, bæði til að hjálpa til við að fjármagna þetta ævintýri sem strákarnir sjá alfarið um sjálfir, og svo auðvitað til að hvetja liðið áfram. Best væri ef við myndum gera þetta eins og í úrslitakeppninni í vor, vinna leikina saman því það er alveg klárt mál að okkar stuðningsmenn fleyttu okkur yfir erfiðustu hjallana síðasta vor. Vonandi heldur það áfram í vetur og við vonumst eftir fullri höll,�?? sagði Gunnar.
Eru allir heilir?
�??Nei, Andri Heimir er frá vegna ökklameiðsla og spilar ekki. Sindri Haralds er líka tæpur en ef ég þekki hann rétt, þá spilar hann,�?? sagði Gunnar að lokum.
Reynt lið úr Evrópukeppni
Um Maccabi er það að segja að liðið endaði í þriðja sæti ísraelsku deildarinnar en féll svo úr keppni í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Maccabi hefur undanfarin ár tekið þátt í Evrópukeppnum og náði bestum árangri 1983 þegar liðið tapaði fyrir Barcelona í undanúrslitum. Maccabi komst svo í 8-liða úrslit 2009 en féll úr keppni á síðasta keppnistímabili í fyrstu umferð fyrir hvít-rússneska liðinu Meshkov Brest 59:43 samanlagt. Maccabi er að mestu skipað Ísraelum, fyrir utan einn rússneskan og einn rúmenskan leikmann.

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.