Erfitt verkefni framundan
ÍBV á erfitt verkefni fyrir höndum á morgun í síðari leik sínum gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion því Eyjamenn töpuðu fyrri leiknum í dag 25:30. �?að þýðir að ÍBV verður að vinna upp fimm marka mun, annað hvort að vinna með sex mörkum í síðari leik liðanna eða skora meira en 30 mörk og vinna með fimm marka mun. Eyjamenn léku illa í dag, fóru mjög illa með mörg dauðafæri og náðu aldrei flugi í sóknarleiknum. Fyrir vikið fengu Ísraelarnir fjölmörg hraðaupphlaup sem þeir nýttu mun betur en ÍBV.
Leikurinn var í jafnvægi lengst af en Ísraelarnir náðu strax tveggja marka forystu og héldu henni framan af. Eyjamenn jöfnuðu þó nokkrum sinnum og samkvæmt lauslegri talningu blaðamanns, fékk ÍBV fimm tækifæri í fyrri hálfleik til að komast yfir en þeir klúðruðu öllum þeim. Staðan í hálfleik var 11:13 en Eyjamenn byrjuðu af miklum krafti í seinni hálfleik, voru búnir að jafna þegar tæpar tvær mínútur voru búnar og Grétar �?ór Eyþórsson kom ÍBV loksins yfir þegar tæpar tíu mínútur voru búnar, 15:14. En þá tók við afleitur kafli hjá ÍBV þar sem Maccabi skoraði níu mörk gegn aðeins tveimur mörkum ÍBV og staðan allt í einu orðin 17:23, sex marka munur. Ekki var heil brú í leik ÍBV á þessum kafla, sóknarleikurinn var afleitur og eldfljótir leikmenn Maccabi refsuðu fyrir hver mistökin. Um tíma var hálfgerð upplausn í leik ÍBV liðsins en leikmenn náðu þó áttum á lokakaflanum og náðu aðeins að laga stöðuna. Markvörður Maccabi var Eyjamönnum erfiður en hann varði alls 18 skot, þar af eina víti áður en hann fékk að líta rauða spjaldið um fimm mínútum fyrir leikslok. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta verður hann hins vegar með á morgun.
Eins og áður sagði mætast liðin að nýju á morgun, sunnudag og hefst leikurinn klukkan 14:00. Miði er möguleiki en leikmenn ÍBV verða að sýna mun betri leik en þeir gerðu í dag. Í raun var aðeins Einar Sverrisson, nýliðinn í hópi ÍBV sem sýndi góða takta, aðrir verða að girða sig í brók.
Mörk ÍBV: Einar Sverrisson 8, Grétar �?ór Eyþórsson 6, Theodór Sigurbjörnsson 5, Agnar Smári Jónsson 4, Magnús Stefánsson 2.
Varin skot: Haukur Jónsson 12/1.
Með fréttinni fylgir viðtal við línumanninn harða, Guðna Ingvarsson.

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.