Jólin eru álagstími hjá starfsfólki Póstsins eins og mörgum. Sigríður Diljá Magnúsdóttir, stöðvarstjóri Póstsins í Vestmannaeyjum, segir að fólk geti auðveldað bréfberum störfin með því að moka og salta gangstéttar og innkeyrslur, því miður sé það nokkkuð algengt á þessum árstíma að bréfberar detti í hálku og slasi sig. �??Svo er þolinmæðin alltaf góð, það getur tekið smá tíma að afgreiða pakka og sérstaklega sendingar til útlanda,�?? bætir Diljá við brosandi.
Nánar er rætt við Dilja í næsta tölublaði Eyjafrétta sem kemur út síðar í dag, miðvikudag.