Bikarleikur sem mun marka líf okkar
B-lið ÍBV leikur gegn �?rótti í 16 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ á föstudaginn og hefur af því tilefni sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu.
�?rettándagleðin, Sjómannadagshelgin, Goslokahátíð, �?jóðhátíð, B-liðið í 16-liða úrslit bikar.
Kæru Eyjamenn! Upptalningin hér að ofan eru allt viðburðir sem marka líf okkar á ári hverju svo eftir er tekið. B-liðið er enn eitt árið komið í 16-liða úrslit bikarkeppni HSÍ. Andstæðingurinn þetta árið er �?róttur, sem situr í neðsta sæti 1. deildar með 3 stig eftir 12 leiki. Leikið verður í gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar næstkomandi föstudag klukkan 18.
Já, það er orðinn árviss viðburður að B-lið ÍBV leiki í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ. Með mikilli elju og dugnaði undanfarin ár hefur liðið náð að byggja upp stöðugleika sem mörg lið líta aðdáunarverðum augum á. Hugur leikmanna B-liðsins stendur þó til að tryggja liðinu sæti í 8-liða úrslitum og við það ætlar liðið að standa.
�?jálfarar liðsins hafa á undanförnum vikum legið undir feldi varðandi leikmannaval og hafa meðal annars haldið tvær úrtaksæfingar. �?að verður því spennandi að sjá hvaða leikmenn fá þann heiður að klæðast hvíta búningnum gegn �?rótti.
Leikmenn B-liðsins þrífast á stuðningi áhorfenda og vilja því hvetja Eyjamenn til að fjölmenna á leikinn á föstudag. Mætum einnig öll í kvöld kukkan 18 og styðjum strákana í meistaraflokki til sigurs í erfiðum bikarleik gegn ÍR.

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.