Flott vetrarupplyfting í Höllinni laugardaginn 28.febrúar
Nú fer í hönd spennandi tími hjá mörgum í Eyjum. Loðnan að gefa sig og margir sem hafa meira en nóg að gera næstu vikur og jafnvel mánuði. En lífið heldur áfram, næturlífið líka ;D) og svo er bara stundum alveg nauðsynlegt að lyfta sér aðeins upp, segir Bjarni �?lafur Guðmundsson Hallarbóndi. FYRIRT�?KI �?? STARFSMANNAH�?PAR �?? SAUMAKL�?BBAR �?? VINAH�?PAR �?? F�?LAGASAMT�?K �?? F�?LAGAR �?? �?G �?? �?�? �?? HVER SEM ER. Höllin og Einsi kaldi stefna á að vera með flotta VETRARUPPLYFTINGU�?? laugardaginn 28.febrúar. Jú, það er rétt, þetta er stóra bikarhelgin og vonandi koma 2 bikarar heim með Herjólfi um kvöldið.
Helgi Björns og félagar hans í SSSól og Síðan skein sól ætla að koma og heimsækja okkur og við ætlum að bjóða upp á skemmtilega ´80 dagskrá. Helgi og félagar ætla að skemmta matargestum sem mæta í Höllina og við bjóðum upp á flottan ´80 en samt svona tímalausan og gómsætan matseðil, hlaðborð að hætti Einsa kalda, sem var enn með bleyju þegar Helgi söng sig fyrst inn í hjörtu landsmanna.
�?á voru hljómsveitir og listamenn á borð við David Bowie, Spandau Ballet, Mick Jagger, Queen, Wham, Duran Duran, Nik Kershaw, Nina, Michael Jackson, Cutting crew, Rod Stewart, INXS, UB40 og fleiri og fleiri að tröllríða öllum vinsældarlistum og mikil og skemmtileg gerjun í tónlistinni í gangi.
Langar okkur að ryfja þetta upp og gera okkur glaðan dag? Okkur langar allavega að stefna öllu skemmtilega fólkinu í Eyjum á einn stað þetta laugardagskvöld í febrúar.
Glæsilegt hlaðborð, skemmtun (þar sem Helgi Björns fer á kostum) og dansleikur á aðeins 7.500,- kall. Undir hlaðborði munum við að sjálfsögðu spila gamla ´80 tónlist….Missisippi, Dancing in the city, Substitude, Abbalögin og fleira sem iljar. …..já og ég býst fastlega við að þetta verði eins og í �??Féló�??…..við tökum við óskalögum. Hvort Olli Henna eða Biggi Sveins eða Kristó Helga komi og snúi skífum verður bara að vera á huldu þar til þar að kemur ;D). En allavega verður Daddi Diskó, sá upprunalegi, ekki langt undan ;D) og vonandi Hjalti Páls ekki heldur.
Til að toppa þetta ætlum við að bjóða upp á Irish, kaffi og Baileys og kaffi og koníak á �??tveir fyrir einn�?? eftir hlaðborðið. Allar frekari upplýsingar og/eða borðapantanir hjá Bjarna �?lafi í síma 896-6818, eða, sem er betra og einfaldara á daddi@hollin.is. Hlökkum til og vonum að ferskir vindar blási um ykkur og Höllina í lok febrúar. �?etta var skemmtileg tónlist og þú getur rétt ímyndað þér hvernig Holy B tekur þetta lag.
Enn betra ef þú ert á tánum og hendir á okkur tónlistartippsum fyrir þessa skemmtilegu og fersku uppákomu. Ef þú ert til, þá erum við það og erum viss um að sameiginlega eigum við eftir að skapa eitthvað alveg einstakt í Höllinni þetta kvöld…..og vonandi verða tveir skínandi bikarar þarna líka ;D)
Algjörlega ær kveðja
Starfsfólk Hallarinnar

Nýjustu fréttir

Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.