�?víst að það borgi sig að hætta notkun olíu í bræðslunum
HS Veitur og Landsnet vinna nú að því að reisa spennistöð í Vestmanneyjum til að auka raforkuflutning til Vestmannaeyja. Vonast er til að hægt verði að tvöfalda þau 22 megavött sem nú er hægt að flytja til Vestmanneyja. Fiskvinnslurnar í bæjarfélaginu segja óljóst hvort það svari kostnaði að hætta notkun olíu við bræðslu þrátt fyrir breytingarnar. �?etta kemur fram á Visir.is.
�??�?að að verðleggja rafmagn með þeim hætti að það sé ódýrara að nota olíu er algjörlega fáránleg hugmynd. Bæði út frá sjónarhóli Vinnslustöðvarinnar og þjóðarbúsins,�?? segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, um verðlagningu á rafmagni til bræðslu í Vestmannaeyjum. �?egar mest lætur er um þriðjungur orkunotkunar Vinnslustöðvarinnar fenginn með olíubrennslu að sögn Sigurgeirs. Hann segir í viðtalinu að án þess að fá tryggingu fyrir því að raforkuverð haldist hagstætt geti Vinnslustöðin ekki réttlætt fjárfestingar í að breyta búnaði til þess að auka raforkunotkun.
Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, segir það afar kostnaðarsamt að hætta olíunotkun en Ísfélagið notar nánast eingöngu olíu við bræðslu. �?að þurfi að vera ljóst að slíkar framkvæmdir borgi sig svo út í þær sé farið. Slíkt velti á þróun rafmagns- og olíuverðs sem afar erfitt sé að spá um.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Veitna, segir að fiskvinnslurnar verði sjálfar að ákveða hvort það borgi sig að hætta að nota olíu. �??�?að er þeirra mál en ekki okkar,�?? segir Júlíus.
Kostnaður HS Veitna við verkefnið verður um 500 milljónir króna. �?á er áætlað að kostnaður Landsnets við framkvæmdir við Landeyjar verði á milli 200 og 300 milljónir króna. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist á þessu ári og verklok verði eftir rúmt ár.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.