“Engar verðbreytingar eru á gjaldskrá hjá Reykjanesbæ, Akraneskaupstað, Ísafjarðabæ og Sveitarfélaginu Skagafirði. �?ll hin hækka gjaldskrána. Hæstu gjöldin eru greidd í Vestmannaeyjum 51.323 kr. á árinu 2015 en lægstu gjöldin eru greidd í Garðabæ 21.400 kr. og er það 140% verðmunur eða 29.923 kr. Sem dæmi um hækkanir hjá öðrum sveitarfélögum má nefna að mest hækkar Akureyri um 33%, Kópavogur um 11%, Hafnafjörður 9,7% og Seltjarnarnes 9,5%” segir í skýrslu Verðlagseftirlitsins.