Höfnin ekki aðalvandamálið heldur aðkoman
�??Næsta sumar eru liðin 5 ár síðan Landeyjahöfn var opnuð fyrir siglingar Herjólfs. Nú er ágætt að staldra við og líta yfir farinn veg í þessum málum. Sjálfur hef ég farið ófáar ferðirnar þarna upp eftir, ýmist til mælinga, athugunar á Lóðsinum, nú eða sem notandi Herjólfs,�?? segir Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri á Lóðsinum í athyglisverðri grein á Eyjar.net.
�??Hvað varðar þá spurningu, sem oft ber á góma um hvort Landeyjahöfn sé nú allt í einu nógu góð og vanti bara rétta skipið er mitt svar: Höfnin sjálf er ekki aðal vandamálið, heldur er aðkoman að henni og sú staðreynd breytist ekki við nýja ferju, hvort sem hún er frá Grikklandi eða lítil ferja frá smíðanefndinni. Reyndar væri ágætt að fá grísku ferjuna til prufu. Með því fengjust svör við ýmsum spurningum varðandi samgöngur milli lands og Eyja.
Til dæmis er stjórnhæfni grísku ferjunnar væntanlega meiri en litlu ferjunnar við erfiðar aðstæður eins og við Landeyjahöfn. Gríska ferjan er með fjórar skrúfur á móti tveimur skrúfum á litlu ferjunni auk hliðarskrúfu, en þær hafa litla virkni, nema skipið sé nánast stopp. Djúprista grísku ferjunnar er mest 3,5m en á litlu ferjunni mest 3,0m. Flutningsgetan er margföld á við litlu ferjuna og það væri skemmtileg upplifun fyrir okkur Vestmanneyinga að prufa eitt sumar án biðlista. Losna við biðlistana fyrir bifreiðar! Flutningsþörfin yrði mun skýrari, einnig aðstæður við höfnina,�?? segir Sveinn Rúnar í upphafi greinarinnar.

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.