Málefni fatlaðra áfram í höndum Vestmannaeyjabæjar
“Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur að tillögu samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks veitt sveitarfélögunum Hornafirði, Vestmannaeyjabæ, Norðurþingi og �?jónustusvæði Vestfjarða framlengingu á undanþágu frá íbúafjöldamörkum þjónustusvæða.” segir í tilkynningu á vef Velferðarráðuneytisins.
“Við yfirfærslu á þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga sem tók gildi 1. janúar 2011 veitti velferðarráðherra umræddum fjórum sveitarfélögum/þjónustusvæðum undanþágu frá lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða. Var undanþágan veitt með vísan til heimildar í 3. mgr. 4. gr. laga nr. 59/1992 og var í gildi til 31. desember 2014.
Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks bárust, á síðari hluta nýliðins árs, umsóknir frá sveitarfélögunum/þjónustusvæðunum um framlengingu á undanþágunni. Fulltrúar nefndar um endurmat á yfirfærslunni áttu fund með öllum umsækjendum, einnig var óskað eftir umsögn réttindagæslumanna fatlaðs fólk um umsóknirnar. Umsagnir réttindagæslumanna voru jákvæðar. Samráðsnefndin ákvað í kjölfarið að mæla með því við félags- og húsnæðismálaráðherra að undanþágan yrði veitt. Ráðherra tók síðan ákvörðun um framlengingu undanþága til 31. desember 2017 með vísan í 4. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks. Ráðherra minnti jafnframt á að markmið laganna er að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og að taka skuli mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks við framkvæmd þjónustunnar. Ákvörðunin kemur til endurskoðunar þegar ný lög um málefni fatlaðs fólks taka gildi en starfshópur félags- og húsnæðismálaráðherra vinnur nú að heildarendurskoðun löggjafarinnar. Eru ákvæði um lágmarksíbúafjölda og skilyrði fyrir undanþágum meðal þess sem starfshópurinn mun skoða.”

Nýjustu fréttir

Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.