Fagur fiskur í sjó
Allmikil umræða hefur að undanförnu verið í fjölmiðlum, á Alþingi og í samfélaginu öllu um sjávarútvegsmál og stjórn fiskveiða og ekki síst um það hver á fiskinn í sjónum þegar allt kemur til alls. Sitt sýnist hverjum um það allt.
Rannsóknir og ábyrg nýting
En um eitt ættum við þó öll að geta verið sammála. Við hljótum öll að vilja vita sem mest um hvað við erum að gera þegar við tökum mikilvægar ákvarðanir um nýtingu þeirrar mikilvægu auðlindar sem fiskistofnarnir okkar eru. �?g segi þetta nú vegna þess að komið hefur fram í fjölmiðlum að vegna fjárskorts geti Hafrannsóknastofnunin illa sinnt nauðsynlegum rannsóknum á loðnustofninum. Einnig hefur komið fram að verðmæti upp á tugi milljarða króna geta gengið okkur úr greipum ef rangar ákvarðanir eru teknar um aflamagn og aðra stjórn loðnuveiðanna.
Er þetta ásættanlegt?
Grundvöllur þeirrar ábyrgu nýtingar fiskistofna og hagkvæmni sem íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu er ætlað að tryggja er að fyrir liggi vandaðar rannsóknir á ástandi fiskistofna. �?að hlýtur því að vera mjög knýjandi umhugsunarefni að á sama tíma og sjávarútvegurinn okkar skilar metafkomu ár eftir ár getum við vegna fjárskorts ekki haldið úti hafrannsóknaskipunum okkar.
Er ekki eitthvað í þeirri jöfnu sem ekki gengur upp?
Hlýtur það ekki að vera lágmarkskrafa, sem við sem í þessu landi búum og erum að eigin áliti og annarra ein fremsta fiskveiðiþjóð heims, hljótum að gera til stjórnvalda að þau búi svo um hnúta að vel sé á spilunum haldið þegar um rannsóknir á helstu nytjastofnum okkar er að ræða?
Ef við erum ekki menn til að tryggja það spörum við eyrinn en köstum krónunni.
Eigum fiskistofnana saman
�?g held að meginmarkmiðið við stjórn fiskveiða og brýnasta verkefnið þar nú hljóti að vera að taka af allan minnsta vafa um að fiskistofnarnir eru eign almennings í landinu. Til þess að tryggja það þannig að ekki verði um villst eða meira um deilt þarf að gera stjórnarskrárbreytingu og setja inn ákvæði þar að lútandi og það strax! Í því sambandi er óhjákvæmilegt að benda á 34. gr. í tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem samin var eftir ítalega umræðu og skoðun á síðasta kjörtímabili en hún kveður á um náttúruauðlindir, eignarhald á þeim, vernd og nýtingu.
�?á hlýtur að vera annað mjög mikilvægt markmið að tryggja að fiskistofnanir skili almenningi öllum góðum arði. Til að það megi vel takast þurfa útgerðir og sjómenn að búa við öruggt starfsumhverfi og nægilegt svigrúm til skipulagningar reksturs og framþróunar og að geta boðið starfsfólki góð kjör.
Aðalatriðið og forgangsverkefni er að tryggja að eigandi auðlindarinnar, þjóðin öll, fái sanngjarnan hluta fiskveiðiarðsins og að hann verði nýttur til samfélagslegrar uppbyggingar og bættra lífskjara.
Byggðakvóti �?? Nýjar leiðir?
Að sjálfsögðu er það réttlætismál að fólk sem býr í hefðbundnum sjávarbyggðum, sem standa illa, fái stuðning til að skjóta nýjum og sjálfbærum stoðum undir atvinnulífið. �?að er sanngjarnt að hluti þess arðs sem verður til í hagkvæmum sjávarútvegi renni til slíkra verkefna. En þurfum við ekki að finna aðrar og skilvirkari leiðir en að úthluta byggðakvótum til útgerða ár eftir ár? Mér finnst við hjakka þar í sama farinu. Má ekki t.a.m. breyta svonefndum byggðakvóta í peninga með því að bjóða hann upp og láta það fé renna til hlutaðeigandi samfélaga? Eykur það ekki möguleika íbúanna til fjölbreyttari uppbyggingar í samræmi við þarfir þeirra og óskir? Væri það ekki líka lýðræðislegri og gagnsærri aðferð við ráðstöfun stjórnvalda á takmörkuðum gæðum?
Færri hendur skili almenningi meiri arði
Við verðum einnig að líta til þess að þegar hefur orðið mikil tæknivæðing í veiðum og vinnslu sjávarafla. �?að þarf nú mun færri hendur til þeirra verka en áður. Sú þróun mun halda áfram. Í því felast tækifæri til að minnka tilkostnað við veiðar og vinnslu og þar með til auka arð sem má og á að nýta til að bæta lífksjör alls almennings í landinu og til sköpunar fleiri og fjölbreyttari atvinnutækifæra um land allt.
Páll Valur Björnsson
þingmaður Bjartrar framtíðar

Nýjustu fréttir

Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Dalurinn – nýtt app fyrir þjóðhátíðargesti
Elena Rut – Langar að spila fyrir íslenska landsliðið í framtíðinni
Síld farin að hrygna suður af landinu

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.