Veturinn ætlar að verða erfiður til sjós og lands. Hvert stórviðrið á fætur öðru. Herjólfur sigldi ekki morgun áætlar að sigla frá Eyjum kl. 15.30. �?lduhæðin við Bakkafjöru er um 4 metrar, 11 metrar við Surtinn og 8 metrar við Grindavík. Mestallur loðnuflotinn ásamt bátaflotanum er í landi og bryggjurnar því þéttsetnar. Hér er kort tekið af marinetraffic, sem sýnir skipin í höfninni í Eyjum.