Styrmir Sigurðarson ráðinn í stöðu yfirmanns sjúkraflutninga HSU
Styrmir Sigurðarson, sjúkraflutningamaður í Vestmannaeyjum hefur verið ráðinn í stöðu yfirmanns sjúkraflutninga við Heilbrigðisstofnun Suðurlands frá 1. maí 2015. Hann var valinn úr hópi átta umsækjenda og uppfyllir mjög vel menntunar- og hæfniskröfur sem settar voru fram fyrir starfið. Styrmir er fæddur árið 1969.
Styrmir hefur lokið námi sem bráðatæknir og slökkviliðsmaður 1.,2. og 3. frá Brunamálaskólanum 2001, neyðarflutningsnámi frá Sjúkraflutningaskólanum 2001 auk grunnnáms sjúkraflutninga frá Sjúkraflutningaskólanum 2001. Til viðbótar hefur Styrmir öðlast kennsluréttindi í Advanced Life Support og reykköfunar, hann hefur sótt sér endurmenntun á sviði bráðameðferða. Auk þess hefur Styrmir sótt sér menntun á sviði gæðavottunarferla, hópeflis og teymisvinnu fyrir vinnustaði. Styrmir hefur einnig yfirgripsmikla reynslu sem kennari á sviði neyðarflutninga og endurlífgunar. Styrmir hefur verið umsjónarmaður grunn- og neyðarflutninganámskeiða á vegum Sjúkraflutningaskólans, verið leiðbeinandi á endurlífgunarnámskeiðum á vegum ERC, Sjúkrahúss Akureyrar fyrir heilbrigðisstofnanir auk annarrar kennslu. Styrmir hefur fjölbreyttan starfsferil að baki og hefur tekið að sér ýmiskonar verkefni þar sem krafist er hæfileika til stjórnunar og góðs skilnings á rekstri. Styrmir mun áfram starfa og búa í Vestmannaeyjum.
Af HSU.is

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.