Hin árlega söngkeppni Framhaldsskólana, þar sem framhaldsskólar Íslands etja kappi sínum færustu söngvörum, fer fram í Reykjavík þann 11. apríl næstkomandi. Í gærkvöldi, þriðjudag, hélt hinsvegar Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum sína forkeppni. Fimm nemendur sungu og fór svo að Sigríður �?óra Ingadóttir var valinn sem fulltrúi FÍV en hún flutti lag Tatara frá 1969, Dimmar rósir. En valið var í höndum dómnefndar skipaða þeim Friðriki Dór, Antoni �?ór Sigurðssyni og Sindra Frey Guðjónssyni. Vinsælasti flytjandinn var valinn Guðmundur Ásgeir Grétarsson, hann söng eigin texta við �?ar sem hjartað slær og hét það �?ar sem Hjalti slær í flutningi Gumma.
�?egar allir keppendur höfðu sungið tók Friðrik Dór nokkur lög við miklar undirtektir áhorfenda.