Að gefnu tilefni hefur Drífa Björnsdóttir ljósmóðir við Hsu/Ve, sett niður punkta til glöggvunar fyrir bæjarbúa varðandi fæðingarþjónustuna í Vestmannaeyjum. Eftir að sumarleyfi lauk í ágúst 2013 tók heilbrigðisráðherra Kristján �?ór Júlíusson þá ákvörðun að opna ekki aftur skurðstofu og þar með að ráða ekki svæfingalækni við stofnunina.
Skurðlæknir sem var í fullu starfi við stofnunina, minnkaði starfshlutfall og kemur nú eina viku í mánuði og hefur hans hlutverk við aðstoð fæðinga þannig orðið að engu. Vegna ítrekaðra fyrirspurna um rétt kvenna til fæðinga í Vestmannaeyjum, vil ég leiðrétta þann misskilning sem gætt hefur í samfélaginu í kjölfar þess að ljóst varð að skurðstofuþjónusta við stofnunina yrði skert. Skv. skilgreiningu landlæknis er fæðingarþjónusta í Vestmannaeyjum flokkuð sem þjónustustig D1 sem er lítil fæðingardeild á heilbrigðisstofnun, þar sem auk ljósmæðra starfa heilsugæslulæknar og aðgangur að fæðingarstað með þjónustustig A �?? C sem er þá LSH ef vandamál koma upp.
Fæðingardeild Hsu/Ve er lágáhættudeild (D1 �?? D2) �?? sem þýðir að konur í eðlilegri meðgöngu sem vænta má eðlilegrar fæðingar hjá, fá að fæða hér. Sem betur fer gildir það um meirihluta kvenna í barneignarferlinu. Konum sem hafa einhverja áhættuþætti eða vænta má vandkvæða hjá í fæðingu, er beint til fæðinga á Kvennadeild LSH. Síminn á fæðingarvakt LSH er 543 – 3049. Ljósmæður í mæðravernd meta áhættu hverrar konu á meðgöngu og leiðbeina um val á fæðingarstað en til nánari glöggvunar bendum við á vef landlæknisembættisins, www. landlaeknir.is.
Tvær ljósmæður starfa við mæðravernd og fæðingarþjónustu í Vestmannaeyjum og skipta þær með sér vöktum. Ljósmóðir er á vakt allan sólarhringinn árið um kring og því er alltaf hægt að fá ráðgjöf og þjónustu þegar á þarf að halda. Vaktsími ljósmæðra er 871-0016 �?að er döpur þróun sem hefur átt sér stað í fæðingarþjónustunni, sem veldur því að konur kjósa að fara á hátæknisjúkrahús til fæðinga og staðan orðin þannig að kannski 5 �?? 10 börn fæðast í okkar heimabyggð árlega.
Síðustu 15 árin hefur fæðingum fækkað verulega, eða úr 80 �?? 90 fæðingar á ári niður í 10. Staðan er því þannig í dag að í Vestmannaeyjum er um að ræða ljósmæðrastýrða fæðingarþjónustu og fáum við þeirri stöðu ekki breytt. �?að er okkar heitasta ósk að konur íhugi vandlega að fæða börn sín í heimabyggð ef kostur er og munum við kappkosta að fræða konurnar okkar og hvetja til þess að fleiri börn geti fæðst hér heima á ársgrundvelli en verið hefur síðustu árin.
Með vinsemd og virðingu Drífa Björnsdóttir ljósmóðir HSU/Ve