Í gær opnaði Sísí Högnadóttir sýningu í Einarsstofu á um 200 ljósmyndum af Eyjakonum í leik og starfi. Verður sýningin opin næstu vikur. �?etta er mjög athyglisverð sýning og hugmyndin frábær að taka myndir af öllum þessum konum, flestum í sinni vinnu. Sísí hefur margoft sýnt að hún er einstakur ljósmyndari og hér stígur hún enn eitt skrefið fram á við. Uppstilling á myndunum er líka mjög skemmtileg og njóta þær sín vel. Myndir er tekin á opnunni í gær þar sem Högni Sigurðsson, faðir Sísíar var að sjálfsögðu mættur.
Sýningin er opin alla daga á opnunartímum Safnahúss frá kl. 10-17 til 14. maí. Allir hjartanlega velkomnir.