Loksins, loksins kom að því að ÍBV skoraði mark í Pepsi-deildinni. Ekki nóg með það að ÍBV skoraði fyrstu mörkin sín í sumar þá kom fyrsta stigið einnig í hús.
Liðið kom til baka í tvígang og tryggði þar með eitt stig gegn nýliðum Leiknis. �?essi lið gætu orðið í fallbaráttu þegar uppi er staðið og stigið því mikilvægt.
Víðir �?orvarðarson jafnaði metin í 1:1 eftir geggjaða sendingu Jóns Ingasonar í fyrri hálfleik. Gamli refurinn Ian Jeffs jafnaði metin síðan í 2:2 eftir flott einstaklingsframtak.
Mætingin á leikinn var nokkuð góð þó svo að meira hafi heyrst í Leiknismönnum.
ÍBV er þó enn á botni deildarinnar með eitt stig, liðið hefur nú skorað tvö mörk og fengið á sig níu.