172 sinnum meira til ríkis
Í Morgunblaðinu í dag birtist viðtal við Páll Guðmundsson, framkvæmdarstjóra Hugins. �?ar sem fram kemur að ríkið fær 172 sinnum meira en hluthafar félagsins í sinn vasa.
Samkvæmt útreikningum KPMG á skattaspori sjávarútvegsfyrirtækisins Hugins ehf. í Vestmannaeyjum, sem gerir út uppsjávarskipið Hugin VE, fengu hið opinbera og lífeyrissjóðir samtals 172 sinnum meira en hluthafar félagsins í sinn vasa.
Sjálfstæðum útgerðum fækkar
Skattaspor Hugins nam samtals 688 milljónum króna á árinu, þar af voru gjaldfærðir skattar 373 milljónir króna og innheimtir skattar 315 milljónir kr. en hagnaður félagsins nam fjórum milljónum króna, 0,4 prósentum af verðmætasköpun fyrirtækisins eftir almennan rekstrarkostnað.
Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins, segir að á síðustu árum hafi sjálfstæðum útgerðarmönnum fækkað mikið sökum skatts sem lagður er á fyrirtækin.
�??�?að er eðlilegt að við borgum skatta af okkar hagnaði eins og allir aðrir sem eru að reka fyrirtæki. �?að telst eðlilegt í öllum vestrænum þjóðfélögum,�?? segir Páll. Verðmætasköpun fyrirtækisins árið 2014 nam 2.123 milljónum króna en 1.086 milljónir stóðu eftir þegar almennur rekstrarkostnaður hafði verið greiddur. Af þeim runnu rúmlega 36 prósent í vasa launþega, 52 prósent í vasa hins opinbera og 11 prósent til lífeyrissjóða.
�??�?etta snýst bara um að vera vondur við vondu karlana sem eru búnir að vera að standa í því að veiða fisk,�?? segir Páll og bætir við að það sé val stjórnmálamanna hvernig fari fyrir sjávarútveginum. »Ef þeir vilja sjá þetta fjölbreytt áfram kalla ég eftir því að þessari skattheimtu verði breytt. En ef menn vilja sjá 10 til 15 fyrirtæki í þessum bransa þá fara menn bara þessa leið.�??
Fleiri reikna út skattaspor
Í síðustu viku greindi Morgunblaðið frá útreikningum KPMG á skattaspori Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og nam skattaspor VSV árið 2014 tæpum þremur milljörðum króna.
Við útreikninga er stuðst við aðferðafræði sem KPMG þróaði með dönskum viðskiptavinum til að leggja mat á það hvernig verðmætasköpun skiptist.
Nánar í Morgunblaðinu í dag

Nýjustu fréttir

Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.