Steinar Magnússon, skipstjóri á Herjólfi, náði þeim áfanga í gærkvöldi að hafa siglt 3.000 ferðir á skipinu milli lands og Eyja. Steinar hóf störf á Herjólfi í byrjun árs 2007 og áætlar að síðan þá hafi hann siglt með um 700 þúsund farþega. �??�?g tel eina ferð sem siglingu fram og til baka. �?g er því búinn að fara 3.000 ferðir, sem gerir 12.000 skipti til og frá bryggju,�?? segir Steinar.
Eftirminnilegasta daginn í starfi á Herjólfi segir hann vera fyrstu ferðina í Landeyjahöfn þegar vígsluathöfnin fór fram. �??Ferðin var alveg meiriháttar. Glampandi sól, flott veður og fjölmargt fólk á bryggjunni. �?að var eflaust skemmtilegasta ferðin. Svo hefur innsiglingin þar hins vegar oft verið erfið líka,�?? segir Steinar, sem segist skynja mikla ánægju farþega eftir að höfnin var tekin í gagnið.
�??�?að stendur auðvitað einnig upp úr hvað fólk er ánægt að geta siglt hérna á milli á 35 mínútum í stað þriggja klukkustunda. Maður sér ánægjuna á fólkinu.�??
�??�?reytt lið�?? heim af þjóðhátíð
�?á segir hann siglingar um verslunarmannahelgar alltaf skera sig úr. �??�?etta er oft þreytt lið að koma til baka. Ef veðrið er gott eru allir glaðir og ánægðir, en það verður vont er sjóveikin fljót að segja til sín,�?? segir Steinar, sem kveðst þó sjálfur blessunarlega ekki hafa orðið sjóveikur um árabil.
Steinar, sem er 68 ára gamall, býst við að láta af störfum í nóvember eftir ríflega 52 ára feril hjá Eimskipum. �??�?g hef verið skipstjóri á Fossunum mestalla tíð, en síðast var ég á Brúarfossi.�??
Hann gerir því ekki ráð fyrir að ná 3.000 ferðum í viðbót. �??�?g býst nú ekki við því, þá yrði ég orðinn ansi gamall.�??
mbl.is greindi frá