Steinar skipstjóri á Herjólfi sigldi í gær, þrjúþúsundustu ferðina milli lands og Eyja
Stein­ar Magnús­son, skip­stjóri á Herjólfi, náði þeim áfanga í gær­kvöldi að hafa siglt 3.000 ferðir á skip­inu milli lands og Eyja. Stein­ar hóf störf á Herjólfi í byrj­un árs 2007 og áætl­ar að síðan þá hafi hann siglt með um 700 þúsund farþega. �??�?g tel eina ferð sem sigl­ingu fram og til baka. �?g er því bú­inn að fara 3.000 ferðir, sem ger­ir 12.000 skipti til og frá bryggju,�?? seg­ir Stein­ar.
Eft­ir­minni­leg­asta dag­inn í starfi á Herjólfi seg­ir hann vera fyrstu ferðina í Land­eyja­höfn þegar vígslu­at­höfn­in fór fram. �??Ferðin var al­veg meiri­hátt­ar. Glamp­andi sól, flott veður og fjöl­margt fólk á bryggj­unni. �?að var ef­laust skemmti­leg­asta ferðin. Svo hef­ur inn­sigl­ing­in þar hins veg­ar oft verið erfið líka,�?? seg­ir Stein­ar, sem seg­ist skynja mikla ánægju farþega eft­ir að höfn­in var tek­in í gagnið.
�??�?að stend­ur auðvitað einnig upp úr hvað fólk er ánægt að geta siglt hérna á milli á 35 mín­út­um í stað þriggja klukku­stunda. Maður sér ánægj­una á fólk­inu.�??
�??�?reytt lið�?? heim af þjóðhátíð
�?á seg­ir hann sigl­ing­ar um versl­un­ar­manna­helg­ar alltaf skera sig úr. �??�?etta er oft þreytt lið að koma til baka. Ef veðrið er gott eru all­ir glaðir og ánægðir, en það verður vont er sjó­veik­in fljót að segja til sín,�?? seg­ir Stein­ar, sem kveðst þó sjálf­ur bless­un­ar­lega ekki hafa orðið sjó­veik­ur um ára­bil.
Stein­ar, sem er 68 ára gam­all, býst við að láta af störf­um í nóv­em­ber eft­ir ríf­lega 52 ára fer­il hjá Eim­skip­um. �??�?g hef verið skip­stjóri á Foss­un­um mest­alla tíð, en síðast var ég á Brú­ar­fossi.�??
Hann ger­ir því ekki ráð fyr­ir að ná 3.000 ferðum í viðbót. �??�?g býst nú ekki við því, þá yrði ég orðinn ansi gam­all.�??
mbl.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
Dýpkun gekk vel í morgun
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni
ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.