Nú styttist óðum í bikarhelgina stóru en bæði karla og kvennalið ÍBV eiga leiki í 8-liða úrslitum í Borgunarbikarnum. Á morgun taka stelpurnar á móti Selfyssingum kl. 17.30 og á laugardag taka strákarnir á móti Fylkismönnum kl. 16.00, báðir leikirnir fara fram á Hásteinsvelli. ÍBV þarf á öllum stuðningi að halda en markmið beggja liða er að komast á Laugardalsvöll.
Eyjamenn gerum hvítar yfirhafnir klárar og mætum hvítklædd á Hásteinsvöll og yfirgnæfum stuðningsmenn beggja liða.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá leikjum sumarsins