Goslokaþáttur N4 aðgengilegur á netinu
Síðastliðinn föstudag stýrðu Margrét Blöndal og Sighvatur Jónsson Föstudagsþættinum á sjónvarpsstöðinni N4 frá goslokahátíð í Vestmannaeyjum. �?átturinn var tekinn upp í Eldheimum á fimmtudaginn og sendur út á föstudaginn en hann er nú aðgengilegur á netinu á heimasíðu N4.
Margt var um góða gesti í þættinum og má þar nefna viðtal við Gerði Guðríði Sigurðardóttir, sem bjó í húsinu að Gerðisbraut 10 í Heimaeyjargosinu 1973, en húsið er þungamiðja sýningar í Eldheimum. Gerður sagði frá ákvörðun sinni um að leyfa það að hús hennar yrði grafið upp og notað í sýningu safnsins, ásamt því sem hún ræddi um málverkasýningu sem hún var með í Eldheimum yfir goslokahelgina.
�?á var talað við �?órhall Barðason í Föstudagsþætti N4 frá Eyjum, stjórnanda endurvakins Karlakórs Vestmannaeyja, en kórinn tók tvö lög í þættinum. Elliði Vignisson bæjarstjóri ræddi um samfélagið í Eyjum, goslokahátíð og samgöngur. Grímur �?ór Gíslason kokkur stýrði �??Stóru smørrebrødskeppninni�??, þar sem Hildur Sævaldsdóttir, Smári Harðarson og Margrét Blöndal tóku þátt. Bjartmar Guðlaugsson rifjaði upp æskuárin í Eyjum og tók goslokalag sitt frá árinu 2013.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.