Aldrei sátt um skert flugöryggi
Hjartað í Vatnsmýri segir að áhættumat Isavia sem Innanríkisráðuneytið hefur nú birt vegna mögulegrar lokunar neyðarbrautar Reykjavíkurvallar sýni svart á hvítu að áhætta aukist ef brautinni verði lokað og að rekstraröryggi vallarins skerðist mjög. �?á segir að niðurstöður matsins sýni að áhætta við lokun brautarinnar sé í flokki B sem kallað er �??þolanlegt�?? sem sé þvert á markmið um öruggar samgöngur þar sem stöðugt sé unnið að því að auka öryggi en ekki draga úr því og að flugfarþegar og sjúklingar muni ekki sætta sig við að fara úr frábæru flugöryggi niður í �??þolanlegt�??. �?á muni engin sætta sig við að aðgengi sjúkraflugs að eina hátæknisjúkrahúsi landsins lækki verulega. Friðrik Pálsson, annar formanna, segir:
�??Lokun brautarinnar hefur mikil áhrif á flugöryggi og leggur áhættumatshópur Isavia því til ýmsar mildunarráðstafanir. Ljóst er af þeim tillögum að reynt er að dempa hina auknu áhættu án þess þó að eyða henni. Slík niðurstaða er með öllu óásættanleg fyrir farþega í innanlandsflugi og sýnir vel mikilvægi neyðarbrautarinnar. �?að verður aldrei sátt um minna flugöryggi.�??
Lokun brautar færi gegn Rögnunefnd
Njáll Trausti Friðbertsson, annar formanna, segir að fram komi í skýrslu Isavia að ákvörðun um lokun brautarinnar hafi ekki verið tekin ásamt því að nothæfisstuðull vallarins muni lækka verulega við lokun brautarinnar. �?ví sé ljóst að lokun brautarinnar muni skerða rekstraröryggi vallarins.
�??�?nnur af meginniðurstöðum Rögnunefndarinnar var að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurvallar uns fullkönnun og/eða framkvæmdum við nýjan flugvöll væri lokið. �?að er ljóst af áhættumati Isavia að engin leið er að loka brautinni og tryggja um leið óbreytt flugöryggi og rekstraröryggi vallarins.�?? segir Njáll Trausti.
Brotalamir á áhættumati
Hjartað í Vatnsmýri bendir jafnframt á að ýmsir ágallar séu á áhættumatinu. Strax í öðrum kafla áhættumatsins koma fram alvarlegir þættir og segir þar orðrétt �??þetta áhættumat tekur ekki á áhrifum á flugvallarkerfið í landinu, neyðarskipulag almannavarna [eða] sjúkraflutninga�??. Við svo bætist að nothæfisstuðull sé ranglega reiknaður þar sem áhrifa bremsuskilyrða og vindhviða sé með öllu sleppt en það séu stærstu og alvarlegustu áhættuþættir við lendingar flugvéla að vetrarlagi í erfiðum aðstæðum. �?á er bent á að áhættumatshópurinn sé alfarið skipaður starfsmönnum Isavia og að aðkoma rekstraraðila og notendum vallarins hafi verið engin. �?á er bent á að Isavia hafi leyst upp fyrri áhættumatshóp reyndra sérfræðinga og flugstjóra sem lendi á vellinum árið um kring þegar í ljós kom að þeir töldu áhættuna við lokun brautarinnar óásættanlega.
Minna öryggi ekki boðlegt
Hjartað í Vatnsmýri segir einnig að �??fráleitt sé að færa Reykjavíkurvöll niður í öryggismálum á meðan unnið sé að því að bæta öryggi á öllum öðrum sviðum í samgöngumálum Íslendinga. Flugið er lífæð landsins og ætti enginn að sætta sig við minna öryggi í flugi til þess eins að þjóna hagsmunum eins verktaka á Hlíðarendasvæðinu.”
Allar frekari upplýsingar veita formenn Hjartans í Vatnsmýri
Friðrik Pálsson í síma 892-1464
Njáll Trausti Friðbertsson í síma 861-9373

Nýjustu fréttir

Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.