Skorar á þingmenn að endurskoða lögin um forkaupsrétt sveitarfélaga
Fyrir síðasta bæjarráði lá dómur í Hæstarétti í máli Vestmannaeyjabær gegn Síldarvinnslunni og Berg Huginn ehf. Bærinn fór fram á að með dómi yrði samningur um kaup Síldarvinnslunnar hf. á öllum eignarhlutum í Berg-Huginn ehf. frá því í ágúst 2012 yrði dæmdur ógildur. Dómurinn féll útgerðunum í vil og kaupsamningur þeirra á milli því gildur en áður hafði Vestmannaeyjabær unnið fullnaðarsigur í héraðsdómi.
Í fundargerð segir að bæjarráð bendi þingmönnum þjóðarinnar á að með tilgreindum dómi hafi hæstiréttur komist að þeirri niðurstöðu að sá réttur sjávarbyggða sem löggjafinn byggði inn í lögin með svo kölluðum forkaupsréttarákvæði hefur verið veginn, metinn og léttvægur fundinn.
Bæjarráð skoraði á þingmenn að endurskoða lögin þannig að yfirlýst markmið laganna hvað varðar öryggi sjávarbyggðanna nái fram að ganga. Bæjarráð bendir enn fremur á að forkaupsréttarákvæðið skaðar ekki þá hagkvæmni í sjávarútvegi sem bundinn er við frjálst framsal. �??Allt tal um slíkt lýsir vanþekkingu á lögum um stjórn fiskveiða. Forkaupsréttarákvæðið virkar þannig að þegar kominn er á samningur getur sveitastjórn nýtt forkaupsrétt ef aðrir aðilar í sveitarfélaginu treysta sér til að greiða sama verð og þegar hefur verið samið um. Verðmætin munu því ætíð leita þangað þar sem hagkvæmnin er mest enda hagkvæmnin forsenda þess að hægt sé að greiða sem mest fyrir verðmætin. �?að sem forkaupsréttarákvæðið gerir er eingöngu að koma í veg fyrir að atvinnurétturinn fari frá íbúum á meðan enn er a.m.k. jafn hagkvæmt að gera út á upprunastaðnum,�?? segir í ályktun bæjarráð.
Hafnar ávirðingum
Ráðið hafnar einnig með öllu ávirðingum um að annarlegar hvatir liggi til grundvallar ákvörðun um að láta reyna á forkaupsrétt vegna þessara viðskipta og beinir því til bæjarstóra að láta áfram reyna á slíkt ef slík staða kemur upp. Sjávarútvegur er undirstaða byggðar í Vestmannaeyjum og það er hlutverk bæjarráðs og bæjarstjórnar að verja hagsmuni íbúa hvað hann varðar.
Að lokum lýsir bæjarráð ánægju með það hve samheldni útgerðarfyrirtækjanna hér í Vestmannaeyjum hefur jafnan verið mikil hvað það varðar að gæta þess að tapa ekki veiðiheimildum frá okkur hér í eyjum. �?að hefur orðið til þess að við höfum nánast haldið aflaheimildum okkar að fullu allt frá því að kvótakerfið var sett á. �?tgerðir hafa gætt þess að fyrirtækin hér hafi keypt heimildir þeirra útgerðarmann í eyjum sem hafa viljað hætta. Bæjarráð telur að útgerðarmenn hér eigi þakkir skildar fyrir það, enda sýnir það ábyrgð, bæði gagnvart staðnum, starfsfólkinu og samfélagi okkar hér.

Nýjustu fréttir

Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Allt undir hjá ÍBV gegn KA í dag
ÍBV tapaði gegn Val í lokaleik Olís deildarinnar
Enginn kemst áfram í lífinu á ljóðum einum saman
Hugmyndin að húsinu fæddist eftir samtal við vini
Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.