Strætisvagnar sinna bekkjabílaakstri á �?jóðhátíð 2015
Eftir síðustu �?jóðhátíð var það öllum ljóst að bekkjabílar og aðrar samgöngur önnuðu ekki þeim fjölda sem saman var kominn á hátíðinni og skapaði það nokkurn vanda. Embætti Lögreglustjóra og �?jóðhátíðarnefnd ákváðu því snemma árs að reyna að finna lausn á samgöngum innanbæjar enda ljóst að leysa þyrfti þær á annan hátt og til framtíðar, enda fyrirséð að aðeins tveir bekkjabílar gætu aldrei sinnt þessum akstri.
Samgöngur á �?jóðhátíð eru mikilvægur þáttur í þeirri þjónustu sem þarf að vera til staðar þegar �?jóðhátíð fer fram. Lengi hefur legið fyrir að bekkjabílarnir myndu renna sitt skeið á enda og nokkur ár eru síðan að það var gefið út af embætti Lögreglustjóra að nýir aðilar fengju ekki heimild fyrir bekkjabílaakstri. Embætti Lögreglustjóra lagði á það ríka áherslu að farþegum verði aðeins ekið á til þess gerðum ökutækjum yfir �?jóðhátíðina 2015, öryggisins vegna. �?jóðhátíðarnefnd hefur því samið við einkaaðila innanbæjar til að sinna akstri á fjórum strætisvögnum yfir hátíðina. Margir kostir eru við að fá hingað strætisvagna. �?eir taka fleira farþega, betri aðstaða er fyrir farþega, betra aðgengi fyrir barnavagna, auðveldara að flytja farangur auk þess sem strætisvagnar eru mun öruggari til farþegaflutnings.
Strætisvagnarnir ganga áfram hina hefðbundnu bekkjabílaleið og enda í Herjólfsdal. Fyrirkomulagið í dalnum verður þó með öðru sniði þar sem strætisvagnar stoppa hægra megin á hringtorginu og nota hringinn til að snúa við og er það gert til þess að auka öryggi þjóðhátíðargesta og flýta fyrir lestun og losun vagnanna.
�?að er von okkar að þetta fyrirkomulag muni henta hátíðinni vel og biðjum við þjóðhátíðargesti að taka vel í þessar breytingar enda þáttur í því að halda áfram að þróa hátíðina. �?að hefur lengi legið fyrir að bekkjabílar gætu ekki ekið fólki til frambúðar og nú er komið að því að breyting verður á og er það einlæg trú okkar að hún verði til góðs bæði fyrir farþega og gangandi vegfarendur.
Hörður Orri Grettisson, f.h. þjóðhátíðarnefndar
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri.

Nýjustu fréttir

Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
Dýpkun gekk vel í morgun
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni
ÍBV mætir Val í fyrsta leik úrslita
The Puffin Run hlaupið í níunda sinn á morgun
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.