Nauðsynlegt að byrja að æfa sig fyrir Vestmannaeyjahlaupið
Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn fimmta september nk. og er ekki seinna vænna að hefja undirbúning. Sigmar �?röstur �?skarsson, fyrrum markmaður ÍBV, landsliðsins í handbolta og ofurskokkari bendir fólki á æfingaplan sem Rannveig Oddsdóttir hefur sett saman. Annars vegar fyrir þá sem eru að byrja og hins vegar fyrir lengra komna og miðast það við tíu kílómetra hlaup.
Gert er ráð fyrir þremur æfingum í viku, á þriðjudögum klukkan 12.00 til 12.45, fimmtudögum kl. 17:30 og á laugardögum kl. 10.00 en hver og einn getur að sjálfsögðu raðað þeim á vikuna eftir eigin hentug- leika. �?rjú skipti í viku er hæfilegt fyrir flesta sem eru að byrja en sumir þola þó að bæta við fjórða skiptinu. Til að auka fjölbreytni og minnka hættu á meiðslum er frekar mælt með að ganga, synda, hjóla eða stunda aðra hreyfingu ef fólk vill æfa oftar en þrisvar í viku. Fyrir byrjendur er mælt með þriggja til fimm kílómetra göngu eða skokki þrisvar í viku. Gott er að hlusta á líkamann. �?að er eðlilegt að vera þreyttur eftir æfingar og strengir eftir fyrstu æfingarnar eru eðlileg viðbrögð líkamans við nýrri og aukinni hreyfingu. �?að er öllu stífara prógrammið fyrir lengra komna og er ætlað þeim sem hafa verið að hlaupa, ráða vel við að hlaupa sjö til átta km og hafa hlaupið 10 km. áður. Gert er ráð fyrir fjórum æfingum í viku, frá fimm upp í sjö km og þar af einni svolítið erfiðri æfingu þar sem tekið er vel á. Hér er reiknað með að mánudagar, þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar séu hlaupadagar. Gott er að taka aðra hreyfingu með tvisvar í viku en hvíla a.m.k. í einn dag. �??Svo er bara að mæta á æfingar og vera klár í Vestmannaeyjahlaupið eftir sex vikur,�?? segir Sigmar �?röstur.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.