Í dag mættust KFS og Magni á Týsvellinum í 3. deild karla. Magni hafði fyrir leikinn ekki tapað leik í sumar og þeir héldu sigurgöngu sinni áfram þar sem þeir lögðu KFS af velli 2-1.
Lars �?li Jessen kom Magna yfir á 24. mínútu og stuttu síðar skoraði Arnar Geir Halldórsson annað mark Magna og komu þeirra mönnum í góða stöðu en þannig stóðu leikar í hálfleik. Tryggvi Guðmundsson minnkaði muninn fyrir KFS á 92. mínútu en nær komust heimamenn ekki og lokatölur 2-1. KFS er í sjötta sæti deildarinnar með tólf stig.