ÍBV til Ísrael og Serbíu
Dregið var til fyrstu um­ferða í Evr­ópu­mót­um fé­lagsliða í hand­knatt­leik í morg­un. Karla- og kvennalið ÍBV keppa í Áskor­enda­bik­arn­um.
Fyrst var dregið í Áskor­enda­bik­ar kvenna. ÍBV mæt­ir serbneska fé­lag­inu WHC Knjaz Mi­los Arandjelovac og fer fyrsti leik­ur­inn fram í serbnesku borg­inni Arandjelovac.
Síðan var dregið til fyrstu um­ferðar Áskor­enda­bik­ars karla. ÍBV kepp­ir fyr­ir hönd Íslands hjá báðum kynj­um en karlalið ÍBV mæt­ir ísra­elska fé­lag­inu Hapoel Ramat Gan. Ramat Gan er borg aust­an við Tel Aviv í Ísra­el og mun leið Eyja­manna liggja þangað í seinni viður­eign liðanna. Sig­ur­veg­ar­inn í viður­eign ÍBV og Hapoel mæt­ir síðan portú­galska stór­veld­inu Ben­fica.
mbl.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Bergmál á Þingvöllum sló í gegn
Mikilvæg stig í húfi þegar Stjarnan kemur til Eyja
MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.