Hjónin Guðbjörg Guðmannsdóttir og �?skar Jósúason eru að hlaupa 100 km á 10 dögum eða 10 km á dag og leggja til hliðar 1.000 kr pr. hlaupara fyrir hverja 10 km sem þau hlaupa. Heildarupphæðin munu þau gefa í gott málefni líkt og þau gerðu í fyrra, þegar þau styrktu krabbameinsfélagið í Vestmannaeyjum skrifar Hjalti Jónsson inn á facebook síðu viðburðarins. ,,�?g fékk leyfi til að “kaupa mig inn” í eitt stk. 10 km hlaup í morgun og með þeim hætti fékk ég tækifæri til að styrkja gott málefni og eiga frábæra morgunstund með þessum yndislegu vinum mínum. �?au eiga þrjú hlaup eftir (mið, fim og föstudag) og hvet ég aðra hlaupagarpa í Eyjum til að taka þátt í þessu frábæra verkefni og taka 1 (eða fleiri) hlaup með þeim. Á föstudagsmorgun kl. 10.00 er síðasta hlaupið og væri gaman að sjá sem flesta hlaupa með þeim. Ef 10 km er of langt er fólki velkomið að hlaupa eða ganga styttri vegalengd,�?? segir Hjalti.