Jonathan Glenn leigður til Breiðabliks út leiktíðina.
Jonathan Ricardo Glenn hefur verið leigður til Breiðabliks út leiktíðina 2015. Jonathan var með samning við ÍBV til loka leiktíðar og hafði ekki sýnt áhuga á að leika áfram hjá ÍBV og því var farið í að leita að framtíðarframherjum fyrir liðið. Mál æxluðust síðan með þeim hætti að ákveðið var að lofa Jonathan að fara í glugganum til liðs Breiðabliks.
Knattspyrnuráð ÍBV þakkar Jonathan fyrir hans framlag til ÍBV og óskar honum góðs gengis í komandi verkefnum. ÍBV hefur þegar tryggt sér tvo aðra framherja, þá Gunnar Heiðar �?orvaldsson, sem er kominn �??heim�?? og Jose Sito Seoane, eða �??Sito�??. Báðir spiluðu fyrsta leik sinn fyrir ÍBV gegn Fjölni og skoruðu samtals 3 mörk.
Á fimmtudaginn er síðan einn stærst leikur sumarsins, gegn KR í 4ra liða úrslitum Borgunarbikarsins, þar sem við ætlum að sækja sigur og tryggja ÍBV sæti í úrslitaleik Borgunarbikarsins árið 2015.
Áfram ÍBV, alltaf, allsstaðar.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.