Víðir yfirgefur ÍBV
Víðir �?orvarðarson hefur ákveðið að yfirgefa herbúðir ÍBV en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Samningur Víðis við Eyjamenn rennur út um áramótin.
Hinn 23 ára gamli Víðir er uppalinn hjá ÍBV og hefur leikið með liðinu allan sinn feril fyrir utan árin 2010 og 2011 þegar hann var hjá Stjörnunni.
�??�?g bý í bænum og mér finnst ég þurfa nýtt upphaf,” sagði Víðir við Fótbolta.net í dag.
�??Mér fannst ég vera farinn að staðna aðeins í Eyjum og ég vil byrja upp á nýtt á nýjum stað.”
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er möguleiki á að Víðir gangi til liðs við Fylki en þar er Hermann Hreiðarsson, fyrrum þjálfari ÍBV, við stjórnvölinn. Víðir vildi þó ekki staðfesta það.
Víðir hefur skorað tuttugu mörk í 97 deildar og bikarleikjum með ÍBV á ferli sínum en í sumar skoraði hann þrjú mörk í 21 leik í Pepsi-deildinni.
Frétt frá Fótbolta.net.

Nýjustu fréttir

Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.