Í Vestmannaeyjum kennir margra grasa í menningu og listum. Hér úir og grúir af hæfileikafólki sem er tilbúið að deila sínum töfrum fyrir aðra til að njóta. Listamenn oftar en ekki sækja innblástur sinn til ægifagurrar náttúrunnar sem umvefur bæjarstæðið okkar. Listin gefur okkur sem njótum hennar tilbreytingu í hversdagsleikann og nærir sálina. Hver bæjarhátíðin á fætur annarri og hátíðarhöld á hinum ýmsu tyllidögum eru kjörin vettvangur fyrir listamenn til að kynna sköpun sína og koma sér á framfæri. Starfsfólk Vestmannaeyjabæjar sem og einstaklingar, hópar og félagasamtök í bænum hafa verið kröftugt afl í að halda áhugaverða og oftar en ekki vel sótta menningarviðburði sem efla veg listarinnar í Vestmannaeyjum
Safnahelgin
Hin árlega safnahelgi stendur nú yfir og er kjörið tækifæri fyrir bæjarbúa að kynna sér þá fjölbreyttu flóru listamanna sem Eyjarnar hafa alið af sér. Safnahelgin var sett við ákaflega fallega athöfn í Stafkirkjunni síðasta fimmtudag sem séra Guðmundur �?rn Jónsson leiddi af stakri prýði. �?ar fluttu Sæþór Vídó og Sunna Guðlaugsdóttir lög eftir texta Snorra Jónssonar á áhrifaríkan hátt sem sjálfur skýrði söguna á bak við textana. Fjölmargir viðburðir eru um helgina og hvet ég áhugasama eindregið til að kynna sér dagskránna og njóta þeirra viðburða sem boðið er upp á.
100 listakonur í 100 ár
Á föstudaginn var opnuð sýningin 100 Eyjalistakonur í 100 ár í Einarsstofu í tilefni af 100 ára kosningarafmæli kvenna og gekk svo vel að fá listmuni á sýninguna að yfir 140 fjölbreytt listaverk eru nú til sýnis í anddyri Safnahúss sem er til marks um þá miklu grósku sem er í vestmannaeysku listalífi. Slíkur listviðburður væri ekki mögulegur nema fyrir tilstilli þeirra fjölda kvenna sem lána listmuni sína og leyfa okkur hinum að skyggnast inn í hugarheim þeirra. Viðburðurinn sýnir einnig hversu fjölskrúðug listin er og að takmörk hennar eru nánast engin, enda eru munirnir á sýningunni af ýmsu toga á borð við sauma- og prjónalist, ritlist, myndlist og svo margt, margt fleira.
Velunnarar Vestmannaeyja gefa Vestmannaeyjabæ myndarlega gjöf
Við opnun sýningarinnar afhenti hópur velunnara Vestmannaeyja myndarlega gjöf, fallegt verk eftir einn fremsta listamann í sögu Vestmannaeyjabæjar, Júlíönu Sveinsdóttur Vestmannaeyjabæ til eigna en Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður hafði frumkvæði í því að safna saman þessum góða hóp sem á það sameiginlegt að vilja halda vestmannaeyskri listsköpun hátt á lofti og tryggja að Vestmannaeyingar geti, í heimabyggð, augum litið verk sem þessi merka kona í íslenskri myndlistasögu skapaði.
Vestmannaeyjabær þakkar öllum þeim sem komið hafa að safnahelginni með einum eða öðrum hætti og sérstaklega þeim sem sækja viðburðina heim, því list væri til lítils ef enginn væri til að njóta hennar.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja