8.000 rúmmetrar af sorpi flutt með Herjólfi
Um 8.000 rúmmetrar af sorpi eru árlega fluttir í gámum með Herjólfi frá Vestmannaeyjum. Sorpbrennslunni í Vestmannaeyjum var lokað árið 2012.
Sorpinu er annaðhvort ekið til Reykjaness eða alla leið norður á Blönduós. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir þessa tilhögun ekki af hinu góða. Bæjaryfirvöld hafa verið að skoða málið undanfarin misseri og leitað leiða til að farga sorpi.
Nýjar brennslur séu orðnar mun fullkomnari en þær voru hér áður fyrr. �?essi flutningur hefur í för með sér mikla olíunotkun stórra ökutækja sem menga andrúmsloftið og slíta vegakerfinu. �?ví er í skoðun bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum að gera eitthvað í málinu.
�??Mín skoðun hefur alltaf verið sú að þetta var óþarfa offors þegar brennslunum var lokað á sínum tíma. �?að var til marks um skilningsleysi þáverandi stjórnvalda að gefa okkur ekki einhvern umþóttunartíma til að vinna að lausn á stöðunni.
�?að að flytja sorp með ferju upp á land er ekki lausn á stöðunni,�?? segir Elliði. Árið 2003 voru innleiddar hertar reglur um sorpbrennslur í gegnum EES-samninginn en undanþága fengin af hálfu íslenskra stjórnvalda fyrir eldri sorpbrennslur sem þá voru starfandi, þar á meðal á Kirkjubæjarklaustri, í Vestmannaeyjum og á Ísafirði.
Mælingar árið 2007 sýndu að díoxín í útblæstri í Eyjum var 85 sinnum meira en viðmiðunarmörk fyrir sorpbrennslur sem starfa á grundvelli EES-reglna frá 2003 gera ráð fyrir.
�??Kostnaðurinn sem hefur lagst á íbúa Vestmannaeyja sem og annarra sveitarfélaga sem hafa þurft að búa við þessa stöðu er gríðarlegur. Við búum hér á eyju og þurfum að flytja sorp með farþegaferjunni okkur upp á land. �?að verður ekki búið við þetta ástand mikið lengur,�?? segir Elliði.
�??�?að er eingöngu eitt í stöðunni og það er að brenna sorp. �?að er umhverfisvænast og sennilega hagkvæmast fyrir þjóðfélagið. Við þurfum skilning stjórnvalda á að búseta okkar á eyju skapi okkur sérstöðu.�??
visir.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Óskar Jósúason í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Herjólfur og Baldur báðir í áætlun á morgun
Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.