Mánudaginn 14. desember n.k. kemur Kap VE-4, hið nýja skip Vinnslustöðvarinnar, til Eyja, beint úr sinni fyrstu veiðiferð. Kap er með um 600 tonn af síld til löndunar. Við þetta tilefni verður skipið opið almenningi til sýnis frá kl. 15:00-18:00 mánudag.