Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sitt 30. mark fyrir A-landslið Íslands í gær þegar íslenska liðið lagði það pólska, 1:0, á Algarvemótinu í Portúgal. Margrét Lára hefur nú skorað í fimm landsleikjum Íslands í röð og hún hefur náð að koma boltanum í net andstæðinganna í 10 af síðustu 12 landsleikjum Íslands.