Í kvöld leikur karlalið ÍBV gegn úrvalsdeildarliði Fjölnis í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppninnar en leikur liðanna fer fram á Grafarvoginum. Fjölnismenn hafa komið flestum á óvart í sumar með góðum leik á sínu fyrsta ári í úrvalsdeild en Fjölnir, Þróttur og Grindavík komust upp úr 1. deild í fyrra á meðan ÍBV sat eftir. Fjölnir lagði t.d. Keflavík á útivelli á dögunum en Keflvíkingar eru í öðru sæti í úrvalsdeild. Það má því búast við þungum róðri fyrir Eyjamenn í kvöld en þess má geta að Fjölnir sló annað Eyjalið út í 32ja liða úrslitum þegar liðið lagði KFS að velli í Grafarvoginum, 6:0.