Góður leikur þrátt fyrir tap

Eyjamenn féllu í kvöld úr leik í bikarkeppninni en liðið sótti úrvalsdeildarlið Fjölnis heim í Grafarvoginn. Fjölnir hefur komið flestum á óvart með góðu gengi á fyrsta ári sínu í efstu deild en liðið er í fimmta sæti deildarinnar og vann m.a. topplið Keflavíkur í síðustu umferð. Eyjamenn voru síst lakara liðið í kvöld en ÍBV komst yfir strax á tíundu mínútu. ÍBV lék svo einum leikmanni færri allan seinni hálfleikinn þar sem Ingi Rafn Ingibergsson fékk að líta rauða spjaldið, annan leikinn í röð en Ingi Rafn tók út leikbann í deildarleiknum gegn Njarðvík. Fjölnir jafnaði metin á 79. mínútu og skoraði svo sigurmarkið í framlengingu.

Nýjustu fréttir

Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.